Vinningarnir mínir fyrir síðustu helgi í 1X2 í enska boltanum:
 
 13  0   454440   
 12  0   2600       
 11  1   210        
 10  5   0            
 
Þetta er nú hálf sorglegt, ef Arsenal hefði unnið þá hefði sennilegast ekki verið borgað út fyrir 11 rétta heldur, en seðillinn
 minn núna kostaði bara 540 kr og ég fæ 210 til baka þ.a. tapið er ekki nema 330 kr, sem er svona ásættanlegt.  Dýrari seðill
 hefði sennilegast ekki gefið mér neitt meira, þar sem að ég hefði alveg örugglega sett heimasigur á Arsenal og hinir föstu 
 leikirnir voru allir réttir, en ég var með 6 þrítryggingar í S kerfi, en 6 þrítryggingar í opnum seðli kosta 7290 kr, svo það er
 nokkuð ljóst að þessi kerfi eru að gera góða hluti, ég held að ég skipti um taktík núna og fari að setja einhverjar tryggingar
 á "öruggu" leikina, því það er eina aðferðin til að ná í einhverja góða vinninga (að vísu vinnur maður þá sennilegast sjaldnar)
 en smávinningarnir eru farnir að verða svolítið þreytandi.  
	 |