miðvikudagur, júlí 12, 2006
|
Skrifa ummæli
sumarfrí
Já allar almennilegar bloggsíður taka sér sumarfrí við og við og nú er sumar og frí, amk sumar, það er amk sumar að nafninu til. Man ég ekki betur en að við höfum tekið okkur frí einhverntíman á upphafsárum bloggsins (að vísu er þetta bara tæplega 3ja ára gamalt) og komið tvíefldir til baka. Aldrei að vita að það geti gerst aftur, því allt sem hefur aldrei gerst getur alltaf gerst aftur.
    
|
Skrifa ummæli
Blogg
Þetta er væntanlega síðasta blogg sem ég rita hér í nokkurn tíma. Ég ætla nú ekki að loka á þetta 100% en ég stefni á langt sumarfrí (er mjög mikið úti) og kem vonandi sterkur til baka.

Svona í lokin ætla ég nú samt að koma með smá komment en það markverðasta sem hefur gerst fyrir mig undanfarið er að ég og Elín erum skilin eftir um 10 ára samband og er ég því maður einsamall í bili.

Læt þetta vera lokaorðin
    
Já, ég held að gott sumarfrí sé málið og við félagarnir skoðum í haust hvort við viljum halda þessu áfram ... ciao bella.
14:24   Blogger Joi 
þriðjudagur, júlí 11, 2006
|
Skrifa ummæli
Ég held að þetta blogg sé endanlega dautt ... ég er að spá í að hætta þessu bara og pæla í öðrum hlutum. Bæjó.
    
Er það nema innleggin hans Pálma sem verða útdauð að loknu HM?
16:33   Blogger Burkni 

Já það er varla hægt að segja annað en að þetta sé að verða sjálfdautt dæmi. Bjarni hefur ekki bloggað í mjög langan tíma, PP bloggar bara um fóbó og við hinir höfum svo sem ekki verið hinu duglegustu.
Kannski er kominn tími að snúa sér að öðrum hlutum.
Ég sjálfur hef ekki verið sá duglegasti hér á blogginu og skal alveg viðurkenna það. Mér finnst menn ritskoða þetta orðið svo mikið sjálfir því fjölskylda, vinir, makar eða aðrir lesa þetta og þá missir þetta marks að vissu leyti.
16:43   Blogger Árni Hr. 

Spurning hvort að maður stofni ekki bara nýtt blogg og hafi Eið Smára og Sveppa, Audda og Pétur með mér (eða voru þeir fráteknir í eitthvað annað blogg)
21:39   Blogger Hjörleifur 

Þá held ég að þetta sé bara útrætt og spurning að setja inn eitt lokablog og þakka fyrir sig?
11:11   Blogger Joi 
fimmtudagur, júlí 06, 2006
|
Skrifa ummæli
tónlist enn og aftur
Nú er nýjasti diskur The Raconteurs í tækinu hjá mér, þ.e. Broken boy Soldiers. Þetta er hliðarproject Jack White í White Stripes.

Þetta er fantagóður diskur og mæli ég hiklaust með honum. Á disknum eru flottir slagarar auk svona góðs blúsrokks.

Þetta er diskur sem venst einnig vel og verður skemmtilegri og skemmtilegri með hverri hlustun.

Mæli með þessu eintaki - 4 af 5 stjörnum.
    
|
Skrifa ummæli
Ástin ástin ástin
Tja, enginn orðar þetta betur en Led Zeppelin

Whole lotta love

You need coolin', baby, I'm not foolin',
I'm gonna send you back to schoolin',
Way down inside honey, you need it,
I'm gonna give you my love, X2

*Wanna Whole Lotta Love? X4

You've been learnin', baby, I bean learnin',
All them good times, baby, baby, I've been yearnin',
Way, way down inside honey, you need it,
I'm gonna give you my love X2

* Chorus

You've been coolin', baby, I've been droolin',
All the good times I've been misusin',
Way, way down inside, I'm gonna give you my love,
I'm gonna give you every inch of my love,
Gonna give you my love.
Yeah! All right! Let's go!

* Chorus

Way down inside, woman, You need love.
Shake for me, girl, I wanna be your backdoor man.
Hey, oh, hey, oh, Oh, oh, oh, Keep a-coolin', baby,
Keep a-coolin', baby.
    
Af hverju ertu að pæla í ástinni?
11:06   Blogger Joi 

Viltu ekki líka spyrja Pálma af hverju hann sé að spá í fótbolta?
11:07   Blogger Burkni 

Tja ef maður gerði það ekki þá væri maður bara fastur í rúnkinu
11:43   Blogger Hjörleifur 
þriðjudagur, júlí 04, 2006
|
Skrifa ummæli
Þetta er gott framtak.
    
mánudagur, júlí 03, 2006
|
Skrifa ummæli
bloggleysi
Já það hefur heldur betur verið bloggleysi hér á bæ, en nú er ég bara að bíða eftir því að Matthew komi heim og verður að segjast að biðin er löng og ströng en það verður bara að hafa það. Svo eru menn farnir að blogga á tölvumáli og ætla ég því að gera slíkt hið sama til að bæta upp síðustu viku.

#!/bin/sh
# Skrifta sem bloggar fyrir síðustu viku

SIDASTA_VIKA='mánudagur þriðjudagur miðvikudagur fimmtudagur föstudagur laugardagur sunnudagur'

for i in $SIDASTA_VIKA
do
echo "Þetta er blogg fyrir $i"
done
exit 0
    
|
Skrifa ummæli
DK
Er á lífi í DK - kallinn orðinn heltanaður og strípurnar sjást vel í sumrinu hér (þ.e. gráu strípurnar).
Næsta skref er að drífa sig heim og hlaða byssurnar ...

Sjáumst í HM horninu á þri eða mið.
    
|
Skrifa ummæli
    
|
Skrifa ummæli
Fóbó og nörd
Tveir stórskemmtilegir leikir í gær á HM.
Rúna missti sig í Englands leiknum og ég held að það sé alveg eðlilegt að gefa rautt - a.m.k. tel ég alveg víst að hann hafi viljandi farið með löppina í andstæðinginn. Framkoma Ronaldo í leiknum var til skammar, hljóp 30 metra að dómaranum til að segja honum að gefa Rúnu rautt og ég sé ekki hvernig hann á afturkvæmt á Leikfang draumanna. Eftir leikinn spurðu blaðamenn hann hvort það væri eitthvað hæft í sögusögnum um að hann vildi fara til Real og hann sagði að þessar sögusagnir væru réttar. Ég er búinn a ð missa trú á drengnum því ég held að hann sé lélegur karakter að láta svona eftir að United er búið að standa með honum í gegnum erfiða tíma.

Frakkar unnu brassana í seinni leiknum og spiluðu alveg magnaðan leik og komu mér mjög á óvart. Spiluðu eins og heimsmeistarar og brassarnir áttu ekkert svar og gátu í raun ekkert á móti frökkunum. Ég hélt með brössum í byrjun leiks en snérist í leiknum því frakkarnir voru magnaðir. Maður leiksins Zidane sýndi hver er kóngurinn.

Ég spyr líka hvar er Pálmi - hann hefur nánast ekkert komið í HM hornið hjá okkur!

Ég nota IView til að halda utanum myndirnar mínar og í gær lenti ég í smá vandræðum með tiltölulega einfaldan hlut sem ég þurfti að gera í forritinu. Svo er mál með vexti að eldri myndirnar mínar heita svona nafni: _MG_4359.DNG, þar sem talan er teljandi númer. Það sem ég geri í dag þegar ég flyt myndirnar inn er að endurnefna þær þannig að heiti myndanna verði einkvæmt, þ.e. þessi teljari nær bara upp í 9999 og fer þá aftur á núll og þarsem það gefur bara 10000 möguleika og ég er með fleiri en eina mynd eru þessi nöfn ekki einkvæm. Ég nefni því myndirnar mínar með innlestrarforritinu í þetta form: YYYYMMDD_####_MMm.DNG þar sem 8 fyrstu stafirnir eru dagsetning á því þegar myndin var tekin, næstu fjórir er 4 stafa númerið sem er í gamla skráarheitinu og síðustu tveir stafirnir (MMm) módelið á vélinni (5D eða 20D). Þegar ég ætlaði síðan að nota innbyggða skráarnefnarann í iView var ekki hægt að taka hluta úr gamla nafninu og setja í nýtt heiti og því gat ég ekki notað hann og hefði þurft að nefna allar myndirnar í höndum (sennilega nokkur þúsund). Að endurnefna skrárnar í öðru forriti hefði ekki verið möguleiki því þá hefði iView ekki vitað lengur hvaða skrár þetta eru því forritið byggir á gagnagrunni og notar skráarnöfnin til að þekkja skrár. Ég fór þá að skoða aðrar leiðir og fann leið sem er ansi öflug og sýnir hvað iView er opið og gott forrit. Það sem ég gerði var að fara í Visual Studio 2005 C# sem er ókeypis þróunarumhverfi frá Microsoft og þar bjó ég til nýtt forrit og flutti þar inn iView COM hlut sem kemur þegar maður bætir við "reference" í forritið og þá hefur maður aðgang að iView og getur t.d. búið til hlut sem er virkur catalogue og keyrt á myndir sem eru núna valdar og breytt heitinu á þeim með því að skoða allskonar hluti inn í myndinni eins og t.d. dagsetningu, módel o.flr. Maður hefur í raun aðgang að öllum upplýsingum um myndirnar þarna inni, stjörnugjöf, flokkanir, upplýsingar um stillingar á vélinni o.s.frv., og getur því gert keyrslur sem eru mjög öflugar. Eftir að þetta forrit var tilbúið vel ég í iView þær myndir sem á að endurnefna og keyri forritið og það keyrir á myndirnar sem eru valdar og endurskýrir þær. Algjör snilld að geta gert þetta og mun þetta alveg örugglega nýtast líka í framtíðinni.

Til gaman set ég inn kótann sem gerir þetta fyrir þá sem hafa áhuga á því:

using System;
using System.Collections.Generic;
using System.Text;

namespace iView_rename
{
    class Program
    {
        static void Main(string[] args)
        {
            iView.Application app;
            iView.Catalog cat;

            app = new iView.Application();

            cat = app.ActiveCatalog;

            foreach (iView.MediaItem pic in cat.Selection)
            {
                if (pic.Name.Length == 12 &&
                    pic.DeviceInfo.CaptureDate != null &&
                    pic.DeviceInfo.CaptureDate > DateTime.Now.AddYears(-20))
                {
                    DateTime d = pic.DeviceInfo.CaptureDate;
                   
                    string name =
                        parseDate(d) +
                        "_" +
                        pic.Name.Substring(4, 4) +
                        "_" +
                        pic.DeviceInfo.Model.Substring(pic.DeviceInfo.Model.LastIndexOf(" ") + 1) +
                        pic.Name.Substring(pic.Name.IndexOf("."), 4);
                   
                    Console.WriteLine(pic.Name + " > " + name);

                    pic.Name = name;

                   
                }
                else
                {
                    Console.WriteLine(pic.Name + "   [Skipped]");
                }          
            }

            Console.ReadKey();
        }

        private static string parseDate(DateTime d)
        {
            return
                d.Year.ToString() +
                getMonth(d) +
                getDay(d);
        }

        private static string getMonth(DateTime d)
        {
            string ret = d.Month.ToString();

            if (ret.Length == 1)
                return "0" + ret;
            else
                return ret;
        }

        private static string getDay(DateTime d)
        {
            string ret = d.Day.ToString();

            if (ret.Length == 1)
                return "0" + ret;
            else
                return ret;
        }
    }
}



Þetta er í fyrsta skipti sem kóði er settur inn á þetta blogg en ég held að þetta sé það sem koma skal. Ef þetta mun ekki vekja upp þetta blogg þá gerir það ekkert!
    
sunnudagur, júlí 02, 2006
|
Skrifa ummæli
dsfafsdf

f
fds
dfs



dfs
fds




fdsfdsfds
    
|
Skrifa ummæli
abc
    
Vikan Jói
 
Vikan Árni
 
Vikan Bjarni
 
Vikan Hjölli
 
Vikan Pálmi
 
Eldri blögg
 
 
 
 
 
 
Myndasíður
 
Tenglar
 
Aðrir blöggarar