Læri
Fór í fótbolta í gær og lærið er ennþá að stríða mér og það var í raun verra eftir þennan bolta en það hefur áður verið og ég er enn hálf haltur. Held að ég hafi tognað fyrir c.a. 6 vikum og þetta tekur sig alltaf upp þegar ég byrja að spila og oft eftir fyrsta sparkið. Ég þurfti að hætta í miðjum leik í gær og núna er ég búinn að ákveða að sparka ekki í bolta í c.a. 4 vikur og reyna frekar að styrkja lærið með styrktaræfingum.
|
Muna að teygja vel - styrktaræfingar og teygjuæfingar. Auk þess þarf að muna að virkja hana í hlaupum osfrv.
12:39 Árni Hr.
|
|