illy caffè: caffè espresso, illy bar, illy collection. Illy, la cultura del caffè
Við Sonja kíktum í kringluna í gær til að ná í myndir úr framköllun og versla aðeins fyrir gjafakort sem ég fékk í jólagjöf. Ég keypti mér kaffikvörn í Hagkaup sem kostaði bara 2900 krónur og keypti mér Illy kaffibaunir sem margir telja þær bestu sem til eru. Nú ætti kaffið mitt að vera í heimsklassa (já, ég veit að ég þarf alltaf að fara út í öfgar með flest sem ég tek mér fyrir hendur). Ég var líka að gæla við að kaupa mér allt Far Side safnið í lit í tveimur stórum bókum og kostaði það tæplega 9þ kall - það er ansi magnað og er ég enn að gæla við það að kaupa það.
|
gældu við það í smá stund lengur því ég var líka að spá í að kaupa það
05:24 Hjörleifur
|
|