miðvikudagur, apríl 18, 2007
|
Skrifa ummæli
Audible
Ég gerðist í gær áskrifandi að audible.co.uk (líka til bandarísk útgáfa sem heitir audible.com en mér þótti breska síðan skemmtilegri þó þetta sé mjög svipað) og fæ hjá þeim 1 eða 2 hljóðbækur á mánuði. Þeir eru með ótrúlegt úrval af mjög áhugaverðum bókum og er þetta eitthvað sem ég ætla virkilega að nýta mér í framtíðinni að hlaða niður bók á þar til gerðann iPod og hlusta á bækur. Hver bók getur verið frá 5-10 klst en það er að sjálfsögðu mjög misjafnt.

Ég sótti mér í gær bók sem heitir The Second Coming of Steve Jobs (Unabridged) og þýðir Unabridged að hún sé óstytt og því í upprunalegri útgáfu - hún er um 8 klst og byrjaði ég að hlusta á hana seint í gærkvöldi og er búinn með tæplega 2 klst af henni. Virkilega áhugaverð bók sem ég mæli með.

Þarna inni eru líka bækur eða verk sem eru merkt sem Dramatized og er þá í raun um útvarpsleikrit að ræða.

Ég mæli með því að fólk skoði þessa síðu.
    
Þar sem Pálmi er líka búinn að fá sér áskrift af audible.com (ég ákvað að notast frekar við hana þarsem hún er ódýrari en enska síðan) þá legg ég til að við setjum reglulega inn dóma af þeim bókum sem við "lesum" hingað inn.
14:23   Blogger Joi 

"lesum" já ;)
Sammála
14:25   Blogger Pálmi 
Vikan Jói
 
Vikan Árni
 
Vikan Bjarni
 
Vikan Hjölli
 
Vikan Pálmi
 
Eldri blögg
 
 
 
 
 
 
Myndasíður
 
Tenglar
 
Aðrir blöggarar