þriðjudagur, júlí 10, 2007
|
Skrifa ummæli
Frá Amnesty International
Fékk þetta í tölvupósti frá félaginu, ótrúlegt að á 21. öldinni skuli enn vera til barbarar sem grýta fólk til bana, væri ekki nær að senda þau í rafmagnsstólinn og drepa þau með virðingu og mannúðlegum hætti eins og Bandaríkin gera. Nei nú verður Bush bara að senda inn almennilegt herlið og sprengja alla barbara í burtu, þetta gengur ekki lengur.

Maður grýttur til bana og óttast að kona hljóti sömu örlög

Það hryggir okkur að tilkynna að Jafar Kiana (ónefndi maðurinn sem átti á hættu að vera tekinn af lífi ásamt Mokarrameh Ebrahimi) var grýttur til dauða í þorpinu Aghche-kand, nálægt bænum Takestan í Qazvin-héraði, fimmtudaginn 5. júlí. Amnesty International óttast að Ebrahimi hljóti sömu örlög nema yfirmaður dómsmála í Íran, Ayatollah Hashemi Shahroudi, skerist undir eins í leikinn.

Kiani og Ebrahimi voru dæmd til að vera grýtt til dauða fyrir hjúskaparbort undir 83. grein íranskra hegningarlaga. Parið hefur setið í Choubin-fangelsi í 11 ár og talið er að tvö börn þeirra dvelji í fangelsi hjá móður sinni. Parið átti að taka af lífi þann 21. júní sl. en aftökunum var frestað eftir að aktívistar í Stop Stoning Forever-herferðinni komu fréttum af örlögum parsins út til almennings og bréfum rigndi inn til íranskra stjórnvalda. Í kjölfarið gaf Ayatollah Shahroudi út skipun um að aftökunni skyldi frestað. Dómurinn var enn í gildi en ekki var talið að honum yrði framfylgt í bráð.

Það var því mikið áfall þegar Stop Stoning Forever-herferðin sagði þær fréttir þann 7. júlí að Jafar Kiani hefði verið grýttur til dauða tveimur dögum fyrr, aðallega af embættismönnum á svæðinu.

Óttast er að Mokarrameh Ebrahimi hljóti sömu örlög. Því eru allir félagar Amnesty International hvattir til að skrifa írönskum yfirvöldum bréf í samræmi við eftirfarandi leiðbeiningar og krefjast þess að hætt verði aftökuna á Ebrahimi og dómurinn yfir henni mildaður.

Með von um að sem flestir sjái sér fært að taka þátt.

Kær kveðja

Skrifstofan

    
Hvað er að gerast á veðurstofunni? Allt vitlaust.
21:00   Anonymous Nafnlaus 

さあ、今夏も新たな出会いを経験してみませんか?当サイトは円助交際の逆、つまり女性が男性を円助する『逆円助交際』を提供します。逆円交際を未経験の方でも気軽に遊べる大人のマッチングシステムです。年齢上限・容姿・経験一切問いません。男性の方は無料で登録して頂けます。貴方も新たな出会いを経験してみませんか
09:19   Anonymous 逆円助 

みんなの精神年齢を測定できる、メンタル年齢チェッカーで秘められた年齢がズバリわかっちゃう!かわいいあの子も実は精神年齢オバサンということも…合コンや話のネタに一度チャレンジしてみよう
09:55   Anonymous 精神年齢 
Vikan Jói
 
Vikan Árni
 
Vikan Bjarni
 
Vikan Hjölli
 
Vikan Pálmi
 
Eldri blögg
 
 
 
 
 
 
Myndasíður
 
Tenglar
 
Aðrir blöggarar